Um er að ræða íbúðahúsin við Stefnisvog 38-46 annars vegar – þrjár byggingar í u-laga formi alveg við sjávarkantinn – og Stefnisvog 1-9 hins vegar sem eru fjögur þriggja hæða hús sem teygja sig eftir Stefnisvoginum.
Íbúðirnar eru fjölbreyttar og henta ólíkum þörfum. Allt frá tveggja herbergja íbúðum upp í fimm herbergja þakíbúðir með svölum.
Lagt var upp úr því að íbúðirnar væru bjartar og því eru gólfsíðir gluggar í alrýmum þeirra.
Húsin eru klædd viðhaldslitlum álkæðningum í ljósum litum og hefur hvert hús sín einkenni.

Aðalarkitekt verkefnisins við Stefnisvog 1-9 og 38-46 er Hjalti Brynjarsson. Hér má sjá tvö viðtöl þar sem hann segir frá þeim áherslum sem hann og teymið hjá Nordic arkitektum lögðu upp við hönnun húsanna.
Áhersla var á að ná sem mestum búsetugæðum fyrir væntanlega íbúa þar sem þeir fá að njóta alls þess sem staðsetningin hefur upp á að bjóða. Hér talar Hjalti um hönnunina á Stefnisvogi 38-46:
Hér fjallar Hjalti um hönnun á Stefnisvogi 1-9:

















