Smellið á húsnúmer til að skoða efnisval



Reir Verk leggur mikla áherslu á að skila fallegum og vönduðum íbúðum.
Innréttingarnar eru sérsmíðaðar frá Gerher í Litháen og eru endingargóðar og slitsterkar. Íbúðir eru afhentar með gólfefnum, harðparketi og flísalögn á baðherbergum og í þvottahúsi.
Íbúðirnar afhendast með uppþvottavél og ísskáp. Öll blöndunartæki eru frá Grohe og sturtutæki frá Hansgrohe. Allar skúffur og hurðir eru með ljúflokunum. Lýsingin var hönnuð af Raflax og Mannvit annaðist hljóðhönnun.
Efnisval íbúðanna var á hendi Viktoríu Hrundar Kjartansdóttur en hún útskrifaðist með B.A gráðu í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands árið 2018.
“Þegar kom að því að velja efni fyrir Stefnisvog hafði ég það að leiðarljósi að efnin væru hlýleg og tímalaus. Við völdum vönduð efni sem þola áreiti og standast tímans tönn. Það er mikilvægt að rýmin séu vel úthugsuð og skapi heimili sem gott er að búa í.” segir Viktoría.
