Þjónustukort

 

Þrátt fyrir að vera mitt í hringiðu borgarinnar þá gefur  staðsetningin við sjávarsíðuna vissa fjarlægð frá borgarniðnum. Fyrir áhugafólk um báta og siglingar er staðsetningin einstök þar sem hægt er að horfa yfir voginn á smábátahöfnina hjá Snarfara.

Skólar og leikskólar eru í nágrenninu og nýr grunnskóli á teikniborðinu í næsta nágrenni.

Verslun og þjónusta er þegar nærri og má nefna í nágrenninu Holtagarða, Skeifuna  og Glæsibæ. Þá mun verslun og þjónusta aukast með frekari uppbyggingu í Vogahverfinu. Þá er jafnframt talsverð uppbygging fyrirhuguð á Ártúnshöfðanum þar sem meðal annars er gert ráð fyrir menningarmiðstöð.

Aðgengi að göngu- og hjólastígum er mikið og hægt að komast gangandi og hjólandi í miðbæinn, Laugardalinn eða upp í Elliðaárdal.

Perla Reykjavíkur

Húsin standa við ósa Elliðaáa og á móti blasir smábátahöfn Snarfara og Geirsnef með sínum gönguleiðum. Göngustígur liggur fyrir framan húsið sem er vel tengdur stígakerfi borgarinnar.

Þá er stutt að komast í Laugardalinn og í verslun og þjónustu í Skeifunni og nágrenni.

Jafnvel þó hverfið sé staðsett nærri stórum umferðaræðum eins og Sæbraut og Miklubraut þá eru íbúðirnar einstaklega friðsælar í nálægð sinni við voginn og hafið.

Elliðaárdalur er einstök náttúruperla í göngufæri. Á góðum dögum njóta krakkar þess að stökkva ofan af Búrfossi og sóla sig í skjólgóðum dalnum.

Stefnisvogur

Gott aðgengi

Mikil áhersla er lögð á gangandi og hjólandi vegfarendur, enda eru öruggir göngu- og hjólastígar meðfram strandlínunni, upp í Elliðaárdal og einnig er stutt í Laugardalinn.

Þegar er kominn leikskóli í næsta nágrenni og fyrirhuguð er skólabygging sem mun teygja sig yfir voginn og er gert ráð fyrir honum í  deiliskipulagi svæðisins.

 

Stefnisvogur
Stefnisvogur

Nýtt hverfi í mótun

Stefnisvogur er hluti af Vogabyggð sem er ný byggð við Elliðaárósa þar sem verið er að umbreyta eldra iðnaðarhverfi í nútíma íbúabyggð með allt að 1900 íbúðum.

Í Vogabyggð má finna glæsileg og opin almenningsými, vandaða stíga og strandsvæði sem endurspeglar gæði umhverfis og samfélags.

Byggðin samanstendur af fjölbreyttri blöndu atvinnu- og íbúðarhúsnæða sem heldur utan um fjölbreytt og skapandi mannlíf.