Margar tegundir íbúða standa til boða í Stefnisvogi. Íbúðirnar henta einstaklingum, pörum og fjölskyldum af öllum gerðum, en um er að ræða allt frá smærri íbúðum upp í stórar þakíbúðir með görðum þar sem til að mynda er hægt að koma fyrir heitum potti. Sérstaklega var lagt upp með að íbúðirnar yrðu bjartar, en gólfsíðir gluggar eru í alrýmum.
Um er að ræða nokkurn fjölda íbúða, sem eru annars vegar í Stefnisvogi 38-46 – þrjár byggingar í u-laga formi við sjávarkantinn – og hins vegar í Stefnisvogi 1-9. Þar rísa fjögur þriggja hæða hús sem teygja sig eftir Stefnisvoginum.
Við val á eldhústækjum var lagt upp úr endingu og gæðum. Tæki í flestum íbúðum eru frá AEG en þakíbúðir með tæki frá Miele. Blöndunartæki koma frá Grohe. Um er að ræða traust og vönduð vörumerki.
Innréttingarnar eru frá Gerher í Litháen og eru bæði fallegar og slitsterkar.
Húsin eru klædd viðhaldslitlum álkæðningum í ljósum litatónum.

Fyrir miðju hússins eru fallegar fjögurra herbergja bjartar íbúðir sem ná í gegnum húsið. Rúmar svalir til suðurs ásamt svölum til norðurs. Glæsilegar fjölskylduíbúðir með útsýni yfir inngarðinn og smábátahöfn Snarfara. Myndirnar eru úr sýndaríbúð 309 en samsvarandi íbúðir eru 111, 210, 213 312 og 411.